Bologna og umhverfi
SAGA
Bologna er höfuðstaður Emilia Romagna héraðsins og viðkomustaður milli norður- og suðurhluta landsins. Miðbær frá tímum Etrúska síðan gallverskur, var rómversk nýlenda. Á miðöldum var borgin reist sem óháð ríki og náði hámarki valda sinna árið 1249 með sigursæla Fossalta bardaganum þar sem tekinn var til fanga Konungur Enzo, sonur Federico II keisara. Innan veggja borgarinnar á XI öld varð fyrsti háskólinn stofnaður í heimindum. Eftir valdaskipti mismunandi lávarðatigna á XVI öld varð borgin endanlega hluti af páfaríki en viðhélt þó eigin fornu dómskerfi, þar á meðal er helst að nefna öldunganefnd og sendiherra í Róm. Hinn eftirtektaverði gamli miðbær sem hefur hvað mest varðveist af Evrópskum borgum hefur að geyma fornar bygingar og kirkjur, fjölmörg listaverk sem undirstrika þá menningarlega mikilvægu stöðu sem Bologna öðlaðist í aldanna rás. Í borginni er nútímaleg sýningarmiðstöð og ráðstefnuhöll sem samanstanda af nútímalegum byggingum sem geta hýst stórar og mikilvægar iðnaðarsýningar á sviði vélvirkjunar, matvælaiðnaðarins o.fl. Göngutúr meðfram “portici (bogagöng)sem samtals ná allt að 40 km. og setja svip sinn á götur borgarinnar gefur möguleika á að kynnast hinu marghliða og skrautlega lífi borgarinnar, fara í verslunarleiðangur í stórglæsilegar verslanir eða á litla og stóra markaði, einnig matvörumarkaði, kynnast fjölbreytilegum raunveruleika sem bæði efnahagslega og menningarlega er innleiddur í XXI öldina.